fimmtudagur, júlí 31, 2008

Bakstur



Þetta er draumaskápur fyrir mig þar sem ég er alltaf að baka. Fullt af formum og skálum fyrir brauð, kökur, pie og fleira. Í dag fór ég í Debenhams og keypti sílikon kökuform í safnið mitt. Ég kaupi bæði bökunarformin og pottana frá Jamie Oliver sem fást þar.

Ég á brauðvél en finnst brauðið alltaf hálf hart og ólystugt þegar það kemur úr vélinni. Nú nota ég hana eingöngu til að blanda og hnoða deigið síðan baka ég brauðið inni í ofni í fínu sílikon formunum mínum.

Photo: thisisglamorous

miðvikudagur, júlí 30, 2008

Bláu Foo hundarnir





Sem barn man ég eftir því að foreldrar mínir áttu grænbláa Foo hunda sem þau keyptu í Japan. Ég veit ekkert hvað varð af þeim og mig hefur alltaf langað í túrkisalitaðir par.

Í dálítinn tíma hef ég fylgst með skráningu á Foo hundum á eBay. Öðru hvoru koma postulíns hundarnir í sölu en útgáfurnar eru misgóðar sem eru í gangi. Ég hef leitað af gömlum antik hundum sem eru heilir og fallegir. Um daginn fann ég fallegt par.

Myndin að ofan er tekin í stofu hjá Ivönku Trump þar sem hún er með túrkís Foo hunda á hliðarborði við sófann.

Photo: thisisglamorous

laugardagur, júlí 26, 2008

Make up haustið 2008



Ég hef hef verið að hugsa um hvað verður trendi í haust og hvaða liti mig langar að sjá í make upi. Mín tilfinning eða það sem ég er hrifin af núna eru svona muskulegir fjólubláir litir {með gráum tón} og gráir tónar í kringum augun. Mjög löng augnahár svona eins og mamma var með þegar ég var barn. Ekta 70´s style. Hugsið... Studio 54, Bianca Jagger, Lauren Hutton & Bryan Ferry tónlist & Halston fatnað.

Ljósleit og fersk húð. Ferskjulitaður kinnalitur finnst mér ofboðslega fallegur með fjólu og gráum tónum. Á varirnar náttúrulegur beige-bleikur litur og t.d. að kvöldi til dökkir plómu litir út í brúnleitt.

Sambland af blúndum, pífum með dökku og dularfullu Goth lúkki... haustið 2008.

Velkomin



Nú er margret.is að verða sex ára í haust. Á þessum tíma hefur síðan tekið miklum breytingum. Fyrstu þrjú árin þegar ég hafði nægan tíma var síðan mín á lista yfir vinsælustu síður á Íslandi!
Nú er þetta eingöngu áhugamál og afslöppun fyrir mig, að setjast við lap-toppinn minn seint að kvöldi og skrifa færslu. Mínar pælingar og hugsanir fara hér inn. Hér er enn hægt að lesa um make up, tísku, hönnun, uppskriftir af mat og sjá myndir af ýmsum fallegum hlutum.


Áður fyrr hýsti ég síðuna sjálf, en færði hana síðan yfir á mbl. því mig langaði að gefa lesendum tækifæri á að skrifa athugasemdir á síðuna. Nú er blog {weg-log} mitt komið yfir á blogspot og útlitið breytt með fleiri möguleikum sem henta.

Ég vil þakka ykkur öllum sem hafið kíkt við reglulega. Ég á dygga lesendur sem hafa verið með mér frá upphafi. Þeir senda til mín póst og skrifa athugasemdir við færslurnar og láta SKO heyra í sér þegar ég loka til að uppfæra síðuna hahaha! Endilega verið dugleg að nota "comment" takkann og skrifa athugasemdir við færslurnar... það finnst mér lang skemmtilegast!

Kær kveðja
Margrét

þriðjudagur, júlí 01, 2008