Showing newest 20 of 59 posts from ágúst 2008. Show older posts
Showing newest 20 of 59 posts from ágúst 2008. Show older posts

sunnudagur, ágúst 31, 2008

Hollir íspinnar



Það er sniðugt að útbúa holla íspinna til að eiga inni í frysti. Krökkum finnst þetta sérstaklega bragðgott í stað sykraða íspinna því þau vita að þetta er hollara. Hægt er að útbúa á fjölda vegu. Hér að neðan er uppskrift. Allt sett í matvinnsluvél eða blandara og hrært þar til blandan verður að sléttu mauki. Sett í íspinnaform og fryst. Uppáhalds jógúrtið mitt er Biobú ég fæ mér það oft með nokkrum hindberjum og berja-múslí fra Rapunzel.

5 dl Biobú hreint jógúrt
nokkrir dropar Agave sýrop (ef vill)
10 hindber, jarðarber eða 1 dl bláber
1 banani

Svart og gyllt



Á síðu Bazaar er safn beauty leyndarmála. Hér er mynd sem fylgir grein um leyndarmál haustsins. Þar er talað um að ramma inn augun með svörtum blýanti eða jafnvel að nota svartan blautan eyeliner og setja svartan blýant yfir til að mýkja. Gylltum augnskugga er dustað yfir augnlok frá augnahárum upp að augabrún. Síðan er blýantinum og augnskugganum blandað saman með mjúkum bursta og maskari settur á. Sólarpúður er dustað létt yfir kinnbein, enni og höku til að ná fram heilbrigðum ljóma.

Nýji "Darkest Shadow" blýanturinn úr Wisper línunni frá Make Up Store er ýkt flottur og alveg perfekt í þetta!

Photo: bazaar.com

laugardagur, ágúst 30, 2008

Góða helgi !

Stórar blúndur







Photo: style.com

Paris



Ekki amalegt að hafa skrifborð undir glugga með svona útsýni.

Photo: madebyagirl

Giorgio Armani











Giorgio Armani haust 2008. Fyrirsætur Jessica Stam og Du Juan. Ljósmyndari Mert Alas og Marcus Piggott.

Photo: giorgioarmani

fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Stigi



Krúttlegur stigi. Þetta er dálítið skemmtilegt.

Photo: thisisglamourous

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Beautiful












Ég er svo hrifin af nýju Gucci línunni fyrir haustið 2008. Litirnir, munstrin, efnin og samsetningin finnst mér ofboðslega flott. Mig langar í þetta allt. Minnir mig á sígauna. Allavega sjást Rússnesk áhrif greinilega í línunni. Sjá línunna hér.

Photo: style.com

Pleasure Principle



Janet Jackson hefur hannað nýja nærfatalínu með aðstoð Ástralska hönnuðarins Bruno Schiavi. Nýja línan heitir Pleasure Principle eftir vinsælu lagi frá Janet frá árinu 1987 .

Hugsunin á bakvið línuna minnir á Bitten frá Söruh Jessicu Parker því ekkert í línunni er yfir $40. Bruno hannaði nýlega línu fyrir Dr. Rey úr þáttunum Dr. 90210 sem heitir Shapewear.
Pleasure Principle vörurnar er hægt að panta á síðu jupicorp.com.

Photo: people.com

Góða helgi !

þriðjudagur, ágúst 26, 2008

Maria









Kanadíska fyrirsætan Maria í Vogue

Photo: elmerolsen

Charlotte Moss



Charlotte Moss er komin með nýjan heimilisilm. Umbúðirnar líta fallega út. Bakkarnir og lokin virðast vera úr silfri. Innblástur ilmsins er sagður frá Paris. Top nóturnar eru sítrónugras og bleik piparkorn, mið nóturnar eru frankincense, patchouli og mjúk kasmírull. Spennandi!

Photo: charlottemoss.com

Nýr engill









Hollenska fyrirsætan Doutzen Kroes er nýr engill hjá Victoria´s Secret. Áður hefur hún verið í auglýsingum fyrir Gucci, Calvin Klein, Tommy Hilfiger, Escada, Dolce & Gabbana, Valentino, Versace, Guerlain og Neiman Marcus.

Photo: style.com

mánudagur, ágúst 25, 2008

Svart



Síðastliðið haust var slagorðið "black is the new black". Ætli það eigi ekki enn betur við núna. Í haust er bókstaflega allt svart; fatnaður, skór, skart, svartir augnblýantar og augnskuggar. Svart naglalakk hefur aldrei verið heitara og núna er það svartur varalitur.

Nýjasti varaliturinn frá Make Up Store er svartur og heitir Dawn. Nú er það svart!

Photo: sophiesfashion

Biliana Velkova







Fallegar myndir frá listakonunni Biliana Vilkova

Photo: simplyseductive

laugardagur, ágúst 23, 2008

Kremliturinn minn



Við vorum að taka upp fullt af nýjum vörum í Make Up Store. Nú er komin nýr kremlitur "High Tech Lighter" sem heitir Phenomenon. Ég var í skýjunum. Loksins kom liturinn!

Þannig er að það eru nokkrar vörur sem ég hef beðið Make Up Store um að framleiða eins og þennan kremlit. Ég lét þá hafa lit sem ég er ofboðslega hrifin af í fyrra og þeir sendu til mín prufur. Ég gaf þeim punkta um hvernig tóninn átti að vera og nú er búið að framleiða hann. Þvílík snilld. Áður hafa þeir framleitt Charm armband sem ég gaf þeim hugmynd af.

Liturinn er drapplitaður með litaögnum sem endurkasta látlausu gulli og silfri sem gera það að verkum að húðin verður frískleg. Mjög flottur litur einn og sér yfir allt augnlokið eða sem grunnur undir augnskugga. Flottur litur á varir eða ofaná varalit og síðast en ekki síst "highlighter" á kinnbein því hann er ekki of ljós, ekki of gulur né bleikur. Bara perfekt og algert "must buy"! Ég breytti örlítið litunum í myndinni að ofan þannig að þið gætuð séð litatóninn.

Photo: style.com

föstudagur, ágúst 22, 2008

Dökkar varir haustið 2008









Mér finnst allt geggjað frá Rodarte núna í haust. Hér eru myndir af make upi frá haustsýningu Rodarte. Mikið er um að farðinn sjáist á sýningarpöllunum með annaðhvort möttu púðri eða púðri sem gefur ljóma, lítið sem ekkert máluð augu og dökkar varir. Dálítill leikhús fílingur hjá mörgum merkjum nú í haust.

Photo: style.com

Húsið í Hamptons







Væri alveg til í að búa í þessu fallega húsi. Draumur í dós! Það sem mér finnst alltaf svo fallegt er að blanda saman gömlu og nýju. Benjamin Noriega-Ortiz hannaði húsið sem er í South Hampton.

Photo: bnodesign

Krúttleg barnaherbergi











Photo: madebygirl

Hundarúm úr plexigleri









Stílhrein og flott hundarúm. Hægt að fá í glæru og í allskyns litum hjá WowBow London.

Photo: wobow