föstudagur, október 31, 2008
Ókeypis í nóvember!

Í nóvember ætlum við að bjóða upp á ókeypis förðunarnámskeið í Make Up Store.
Þau hafa þótt mjög skemmtileg og lærdómsrík.
Tilvalið að koma og læra. Sjá nýjar aðferðir, nýja tískustrauma og fá innblastur. Á hópnámskeiði er veittur 20% afsláttur.
Eina sem viðkomandi þarf að gera er að hringja í Make Up Store Smáralind í síma 551-6300 og skrá sig.
05. nóvember kl. 19:00-22:00 í Smáralind
12. nóvember kl. 19:00-22:00 í Smáralind
19. nóvember kl. 19:00-22:00 í Smáralind
26. nóvember kl. 19:00-22:00 í Smáralind
fimmtudagur, október 30, 2008
þriðjudagur, október 28, 2008
Tímaritið Hann hún október


Í október hefti tímaritsins Hann hún er opna um förðun frá Make Up Store. Endilega grípið ókeypis eintak af blaðinu sem liggur víðsvegar frammi í verslunum.
Förðun: Margrét - hár: Ásta hjá Krista/Quest Kringlunni.
Ljósmynd: Arnold
mánudagur, október 27, 2008
Ruby Red jólaklúbbkvöld

Seinkun er á jólalínu og nýjum vörum út af ástandinu sem hefur verið. Þannig við neyðumst til að færa klúbbkvöldið fram til 4. des. Þá verður kvöldið sameinað við jólagjafakvöld sem við höfum haft i desember. Lofum skemmtilegu kvöldi!
Vörusending kemur í næstu viku en nýjar vörur ættu að koma um 21. nóvember.
Tilvalið að koma og gera góð kaup á jólagjöfum!
miðvikudagur, október 22, 2008
Styrkur !

Gordon Brown beitti hryðjuverkavarnarlögum gegn Íslendingum. Við erum í alvarlegri stöðu. Þetta snertir okkur öll. Ímynd Íslands fer versnandi.
Ég hvet alla að fara inn á þessa síðu indefence.is og skrifa undir til að fyrirbyggja frekari skaða
mánudagur, október 20, 2008
Tilboð
Selected Smáralind

Selected opnaði glæsilega verslun fyrir helgi í Smáralind. Make Up Store tók þátt í opnuninni með því að kynna nýjan ilm og bjóða létta förðun í nýju versluninni. Einnig var viðskiptavinum Selected boðið 20% afslátt af snyrtivörum í Make Up Store.
Fatnaðurinn frá Selected er ofboðslega flottur og gaman að fá verslun sem selur smart fatnað úr góðum efnum á góðu verði. Kíkið endilega á heimasíðuna selected.com
Photo: Selected
sunnudagur, október 19, 2008
Karl Berndsen opnar Beauty Bar

Karl Berndsen vinur minn hefur opnað hárgreiðslustofu í Hæðasmára 4 í Kópavogi. Karl nam fyrst hárgreiðslu hjá Salon Veh en átti síðan og rak hárgreiðslustofuna Kompaníið um árabil. Síðastliðin 12 ár hefur hann verið búsettur í London. Hann hefur starfað í heim tískunnar um víða veröld og unnið fyrir helstu tískuhönnuði og tískutímarit heims jaft í förðun sem hárgreiðslu.
Photo: Karl Berndsen
laugardagur, október 18, 2008
Smáralind
föstudagur, október 17, 2008
Rauðar varir
föstudagur, október 03, 2008
Blazer jakkar




Flott núna, Blazer jakkar. Myndir að ofan eru frá tískusýningu Charles Anastase, Balenciaga og úr þáttunum Gossip Girl.
Photo: thisisglamorous
fimmtudagur, október 02, 2008
miðvikudagur, október 01, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)












