Magga í Make Up Store, eins og Margrét er alltaf kölluð, tók upp burstann í tilefni jólahátíðarinnar og sýnir hér hvernig má töfra fram gullfallega og hátíðlega jólaförðun.
GLÆSILEG GLIMMERBOMBA:
Útkoman er stórkostleg. „Varirnar eru ljósbleikar. Berið lit eins og „Wobble“ eða „Exit“ yfir varirnar. Berið síðan varablýantinn á eftir á, það kemur einstaklega vel út. Að lokum er „Spy“-varagloss sett á miðjar varirnar eða glært gloss til að fá þetta sexý og kyssilega lúkk!“
Smellið á myndirnar til að stækka.

SKREF 1:
„Til að fá fallega útkomu í förðun er áríðandi að gera húðina fallega. Byrjið á að úða Face Mist-rakaúða yfir hreina húð. Berið síðan Skin Serum yfir andlitið. Það gefur raka, fyllir upp í fínar línur og eykur endingu farðans. Best er að nota það á hreina húð á eftir dagkremi og á undan farða. Áríðandi er að velja farða í réttum húðlit. Farðinn á ekki að sjást heldur aðeins að jafna út eigin húðlit. Fyrir blandaða húð er gott að dusta yfir með púðri en fyrir feita húð er gott að nota púðurfarða sem dregur í sig umframhúðfitu.“

SKREF 2:
„Berið léttan hyljara, eins og Reflex Cover, undir augun. Hyljarinn lýsir upp augnsvæðið því hann inniheldur litaragnir sem endurvarpa ljósi. Veljið þéttari hyljara á húðina þar sem á að hylja til dæmis bólur eða einhver önnur lýti. Varist að bera hyljara á með fingrunum vegna húðfitu. Notið frekar bursta, það eykur endingu.“

SKREF 3:
„Fyllið inn í augabrúnirnar með viðeigandi lit, til dæmis Tri Brown. Gott er að nota skáskorinn bursta. Varist að hafa augabrúnirnar of dökkar. Ekki gleyma vörunum. Berið varasalva á varirnar á meðan á undirbúningnum stendur til að mýkja þær fyrir varalitinn.“

SKREF 4:
„Til að fá fallegan ljóma á húðina er tilvalið að nota Wonder Powder. Púðrið er unnið úr steinefnum sem vernda húðina í stað þess að þurrka. Dustið létt með bursta yfir kinnbein, nef og enni, sleppið hökunni. Til að ramma inn augun er borinn á dökkur augnskuggi. Hér nota ég „Kakaw“. Ljósbrúnn „Smog“-augnskuggi er dustaðaður létt yfir glóbuslínuna. Blandið síðan ljósum, sanseruðum augnskugga eins og „Siberia“ eða „Muffin“ yfir glóbuslínuna og dreifið upp að augabrúnum. Notið sérstakan blöndunarbursta sem er ómissandi til að blanda saman litum. Það er mjög flott að draga ljósu, sanseruðu skuggana út að gagnauga og tengja við kinnalitinn.“

SKREF 5:
„Til að poppa aðeins upp lúkkið er skemmtilegt að nota einhverja bjarta liti. Í þetta skiptið notaði ég appelsínugulan augnskugga, „Ruby“, yfir allt augnlokið og umhverfis augnhvarmana. Til að hafa augnahárin flott er gaman að velja falleg aukaaugnhár eftir smekk og líma á eftir að maskari hefur verið borin á. Fyrir þá sem eiga erfitt með að setja augnhár á er hægt að nota svokallaðan „gogg“ sem auðveldar verkið. “
SKREF 6:
„Til að taka förðunina skrefi lengra um hátíðarnar er skemmtilegt að bera fíngert glimmer yfir allt augnlokið. Í þessari förðun valdi ég bleikt glimmer, „Nova“, þar sem bleiki liturinn er svo vinsæll um hátíðarnar í ár. Byrjið á að bera glært Blend & Fix-krem yfir augnlokið. Dýfið síðan bursta með gervihárum í glimmerið og dúppið yfir glæra gelið á augnlokinu. Passið að hafa tissue undir augunum svo glimmerið lendi ekki undir augunum. Ef einhver aukakorn eru á húðinni er fínt að nota límbandsbút til að ná kornunum af. Einnig þegar förðunin er fjarlægð.“
MÖGNUÐ MAGGA:Magga er með ráð undir rifi hverju. „Á kinnar er fallegt að nota bleikan kinnalit. Varist blátóna lit þar sem varirnar eru ljósbleikar. Veljið heldur hlýja, bleika tóna. Kinnaliturinn er settur fremst á kinnar með stórum bursta. Fallegt er að dreifa litnum örlítið upp á kinnbeinin.“
TEXTI: ÞORBJÖRG MARINÓSDÓTTIR
MÓDEL: BIRNA KETILSDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: MARGRÉT R. JÓNASARDÓTTIR
3 Athugasemdir:
I arrived here just surfing.
Congratulations on Your nice site and best wishes from an Estonian living in Italy
ég notaði Make Up Store Exit + candy og Forbiden Kiss varablýanta :-)
Thank you Pilland :-)
Sendu inn athugasemd