miðvikudagur, september 30, 2009

BeautyLight



Matthew Rolston var uppgvötvaður ungur af Andy Warhol. Hann hefur tekið myndir fyrir mörg tímarit eins og Interview Magazine, W Magazine, Rolling Stone, Harper’s Bazaar og BlackBook.
Ný útkomin bók heitir “beautyLIGHT” (útgefandi teNeues), sýnir helstu myndir Matthew Rolston’s síðastliðin 20 ár.

Í bókinni eru meðal annars myndir af Angelinu Jolie, Zac Efron, Lindsay Lohan, Adam Levine, Jay-Z, Matthew McConaughey, Jessica Simpson, Jack Nicholson, Christina Ricci, Jennifer Lopez, Johnny Depp, Janet Jackson og mörgum öðrum stjörnum.

Standard útgáfa af "beautyLIGHT" kostar um $75 en Collectors’ Edition (600 eintök útgefin) með eiginhandaráritun kostar um $2500. Báðar bækurnar fást a Teneues.com.

þriðjudagur, september 29, 2009

Kim Kardashian á Emmy hátíð



Á Emmy hátíðinni síðastliðin sunnudag skartaði Kim Kardashian mjög ljósri augnmálningu. Stjarnan er þekkt fyrir að vera með dökk augu og mikinn eyeliner, en í þetta skiptið sleppti hún eyelinerinum og valdi þess í stað löng og gisin stök augnahár sem vöktu þó nokkra athygli.

Til að ná fram þessu útliti höfum við tekið niður nokkra góða punkta frá Make Up Artista Kims Kardashian; Mario Dedivanovic. Hér að neðan eru upplýsingar um hvaða liti er hægt að nota frá Make Up Store.

Húðin á Kim er ávallt óaðfinnanleg með miklum ljóma þannig byrjið á að úða Face Mist á hreina húð til að veita raka og undirbúa fyrir ásetningu farða. Berið farða á húð með þar til gerðum bursta fyrir farða eins Foundation Brush Duo hair. Gott er að úða líka Face Mist á burstann.

Veljið hyljara sem hentar og penslið síðan yfir hann með Reflex Cover. Berið vel af Reflex Cover í kringum augun, á augnlok og meðfram nefinu þannig að það myndi stórt ljóst hjarta. Gott er að nota bursta með gervihárum í hyljarann og Reflex Cover eins og bursta #206. Hann er góður með öllum hyljurum. Berið síðan Luminouz Bronzer á enni og kinnbein. Gott er að nudda Foundation Brush Duo hair létt yfir til að jafna og bóna upp gljáann í húðinni.

Berið á mildan kinnalit eins og Blush "Sugar Pink" með kinnalitabursta #340 í kinnarnar.

Greiðið augabrúnirnar og fyllið inn með Tri Brow. Passið að teikna ekki formið á augabrúnunum allan hringinn. Formið heldur eingöngu að ofanverðu til að halda útlitinu náttúrulegu.

Fyrir augnförðunina er upplagt að nota bursta #204. Veljið mjúkan dökkgráan blýant eins og Eyepancil "Invitation" eða "Dusty Smoke" (fyrir þær sem eru ljósar yfirlitum). Nuddið burstanum í blýantinn og stimplið síðan burstanum undir augnahárin til að útbúa felu-eyeliner það rammar inn augun. Athugið að setja eingöngu inn á milli augnaháranna.

Hvítur kremlitur High Tech "Platina" borin á allt augnlokið. Gott er að nota sama burstann og í hyljarann, bursta #206. Notið eingöngu örlítið af kremlitnum yfir allt augnlokið og berið vel inn að nefi og í kringum augnkrók. Passið að bera ekki sanseraða kremlitinn of hátt upp að beininu (sanseringin á ekki að ganga upp að augabrún). Nuddið síðan restinni af litnum úr blýantsburstanum í örmjóa línu ofan á augnlokið þannig hann blandist við kremlitinn. Dustið síðan yfir ljósum augnskugga eins Microshadow "Satin" yfir augnlokið og vel í kringum augnkrok. Að lokum er skyggt smávegis með Microshadow "Moonstone" augnskugga meðfram augnahárunum. Bæði uppi og niðri með bursta #105. Rennið síðan Eyepencil "Vanilla" inn í vatnslínunna í auganu til að stækka augun og gefa birtu.

Maskarið augnahárin mjög vel með Max Lashes "Black". Dragið endann á burstanum vel út eftir augnahárunum til að lengja. Festið 4-6 stök augnahár á efra augnlokið. Veljið single 13 mm og ef til vill 3-4 af10 mm á þau neðri fyrir dramatískra útlit.

Mótið varirnar með varablýanti Lippencil "Sand Storm". Rennið varablýantinum sem er sanseraður örlítið útfyrir á efri vör. Berið síðan á neðri varalínunna Lippencil "Wood". Hann gerir það að verkum að það myndast skuggi undir vörinni. Að setja ljósari lit á efri og dekkri á þá neðri gerir það að verkum að varirnar virka þrýstnari. Berið síðan varalitinn Lipstick "Baby" á með bursta #111. Varist að maka varalitnum á til að forðast að gera hann of þykkann og gljáandi. Áriðandi að "dúppa" honum létt á með burstanum.

Ekki gleyma líkamanum. Úðið Face Mist yfir líkama og hár. Blandið síðan saman Excotic Body Butter og Shimmer Powder "Silver" og berið á bringu, axlir og handleggi. Gangi ykkur vel!

MAKE UP STORE VÖRUR:
Face Mist kr. 2.990.-
Liquid Foundation kr. 4.890.-
Reflex Cover kr. 3.490.-
Luminouz Bronzer kr. 5.990.-
Microshadow; Moonstone/White kr. 2.890.-
Cybershadow; Silver kr. 2.690.-
High Tech; Platina kr. 2.890.-
Eye Pencil; Invitation kr. 2.490.-
Eye Pencil; Dusty Smoke kr. 2.490.-
Single Eyelash; 13 mm kr. 1.490.-
Single Eyelash; 10 mm kr. 1.490.-
Eyelash Glue kr. 1.490.-
Lip Pencil; Sand Storm kr. 2.490.-
Lip Pencil; Wood kr. 2.490.-
Lipstick; Baby kr. 2.890.-
Blush; Sugar Pink kr. 3.490.-
Excotic Body Butter kr. 3.990.-
Sparkeling Powder; Silver kr. 3.290.-

BURSTAR
Brush #206 kr. 3.290.-
Brush #204 kr. 1.990.-
Brush #105 kr. 3.490.-
Brush #111 kr. 2.890.-
Foundation Brush Duo kr. 5.890.-
Powder Brush #340 kr. 3.690.-

mánudagur, september 28, 2009

Glimmer er sjóðheitt!





Glimmer er sjáanlegt baksviðs á tískusýningarpöllunum fyrir v/s 2010. Baby Phat,BCBG, Celine, L.A.M.B., Louis Vuitton, Naheem Khan, Pamella Roland... listinn af hönnuðum sem sýna glitrandi glimmerfatnað er endalaus! Glimmer sést meðal annars í make-upi, í fötum skóm og í fylgihlutum.

Glimmer í make-upi er á augum, augabrúnum, vörum og nöglum!
Make Up Store glitter í öllum litum kr. 2.490.- u.þ.b. 20 litir fáanlegir.

laugardagur, september 26, 2009

Frábærir hyljarar með litaögnum



NEUTRALIZER
Fljótandi krem með þéttum litaögnum. Litir kremsins vinna á móti öðrum litum þannig að þeir hylja meira með því að gera lit sem á að hylja hlutlausan. Þannig má t.d. draga úr roða, bláum og/eða brúnum baugum og lífga upp á líflausa húð.

Notkun;
2-3 dropa út í dagkrem til að draga úr þeim tón sem á að gera óvirkan.
1-2 dropa út í fljótandi farða og/eða hyljara.
notist eitt og sér á ákveðna staði eins og kinnar, bólur, bauga eða lýti.

Veljið lit eftir það sem á við:

NEUTRALIZER fjólutóna
Dregur úr gulum tón. Gott fyrir þá sem eru með gultóna húð (olive skin) sem vilja fá meira líf í húðlitinn og/eða hlýju. Dregur úr fölleika á gulri húð. Gott til að hylja gulleita marbletti og mjög dökka bauga og bletti á dekkri húð og mjög dökkri húð.


NEUTRALIZER Gultóna
Vinnur á móti rauðum tón. Gott fyrir þá sem eru með Rósroða (e. rosacea), rauða húð, sjáanleg háræðaslit og á bólur sem hafa roða.


NEUTRALIZER Rauðtóna
Dregur úr bláum og/eða dökkum baugum. Lífgar og upp á augnsvæðið. Hægt að nota eitt og sér eða yfir annan hyljara.

Verð: kr. 2.990.-

fimmtudagur, september 24, 2009

Klúbbdagur laugardaginn 26. september


Bjóðum klúbbfélögum að koma í Make Up Store og versla allar vörur með 20% afslætti næstkomandi laugardag.

Endilega komið með vini! Allir geta skráð sig í klúbbinn og fá að auki gjöf með að andvirði kr. 2.890.- þegar þeir kaupa klúbbkortið sem gildir í ár.

Kringlan er opin 10:00 - 18:00
Smáralind er opin 11:00 - 18:00

miðvikudagur, september 23, 2009

þriðjudagur, september 22, 2009

Faberge egg


Czarinna Faberge eggið er komið í Make up Store verslanirnar!

Eggið inniheldur eitt vinsælasta varaglossið Way. Fallegt egg sem er hægt að nota sem geymslu fyrir t.d. eyrnalokka og smá skart þegar glossið er búið.

Eggið mitt er komið ofan á Lauru Ashley Spegilinn minn þar sem ég geymi öll ilmvötnin mín og skartið mitt. Rosa krúttlegt!

Faberge egg frá Make Up Store kr. 8.690.-

mánudagur, september 21, 2009

Lúkkið & litirnir


Til að ná fram þessu lúkki úr tímaritinu Allure eru hér nokkrir ágætis púnktar og ábendingar um liti sem hægt er að nota frá Make Up Store. Gangi ykkur vel!

Úðið Face Mist á hreina húð til að veita raka og undirbúa fyrir ásetningu farða.

Berið farða á húð með þar til gerðum bursta fyrir farða eins og Foundation Brush eða stærri bursta; Foundation Brush Duo hair.

Veljið hyljara sem hentar að hverju sinni. Í þessu tilviki má nota til dæmis léttan hyljara undir augun eins og Eazy Cover blue. Hann hylur bláa bauga. Gott er að nota bursta með gervihárum í hyljara eins og bursta #206. Hann er góður með öllum hyljurum.

Fyrir augnförðunina er hægt að nota sama burstann #206 í High Tech kremlitinn. Notið eingöngu örlítið af kremlitnum yfir allt augnlokið. Dreifið vel úr og upp á við. Liturinn má alveg fara út fyrir augnlokið og upp á beinið. Fjólublár blýantur er síðan borin á í línu ofan á augnlokið. Yfir blýantslínuna er þurr augnskuggi borin á. Gott er að nota bursta #106 eða #105 til að ná vel upp við rótina á augnhárunum og inn á milli augnháranna. Síðan sami augnskugginn borinn á yfir allt augnlokið. Þá er upplagt að nota blöndunarbursta #117. Rennið honum létt yfir augnlokið og hreyfið hann jafnvel í hringlaga hreyfingar þegar augskugginn er borin á. Að lokum er Silfurlituðum blýanti rennt mjúklega undir augað. Gott er að mýkja línuna með fingrinum þannig að útkoman verði mild og falleg.

Mótið varirnar með varablýanti og fyllið aðeins inn á varirnar til að koma í veg fyrir of skarpa línu. Berið varagloss yfir með því að "dúppa" létt með fingrum eða bursta #111. Varist að maka glossinu á til að forðast of þykkt lag. Það á ekki við í þessu lúkki.

Berið á mildan kinnalit eins og Caramel með stórum Powder Bursta eins og #350. Þá verður útkoman náttúrulegri heldur en með minni og þéttari bursta.

MAKE UP STORE Vörur:

Studio Foundation; Beige kr. 4.890.-
Eazy Cover Blue kr. 2.890.-
Microshadow; Flamingo kr. 2.890.-
High Tech; Earth kr. 2.890.-
Eye Pencil; Violet Storm kr. 2.490.-
Eye Pencil; Liquid kr. 2.490.-
Lip Pencil; Red Currant kr. 2.490.-
Lip Gloss Pax kr. 2.890.-
Blush; Caramel kr. 3.490.-
Foundation Brush kr. 5.690.-
Foundation Brush Duo kr. 5.890.-
Brush #206 kr. 3.290.-
Brush #106 kr. 3.890.-
Brush #105 kr. 3.490.-
Brush #111 kr. 2.890.-
Powder Brush allir litir kr. 4.890.-

sunnudagur, september 20, 2009

Magical Fashion





í október tímariti Harpers Bazaar er tískuþáttur tileinkaður Tim Burton.

Fyrirsæturnar eru: Malgosia Bela, Evelina Mambetova og Sephie Srej. Ljósmyndari: Tim Walker.

laugardagur, september 19, 2009

Vintage


Ein sæt fyrir ykkur um helgina af Brigitte Bardot sem stendur fyrir Sexy Glamour!

föstudagur, september 18, 2009

Fréttabréf vika 38



Fréttabréf frá margret.is er farið út. Hægt er að skrá sig hér á fréttabréfið ofarlega hægramegin á síðunni.

fimmtudagur, september 17, 2009

Leyfðu þinni náttúrulegri fegurð að skína.


Í september hefti Nýs Lífs er grein þar sem heitir Leyfðu þinni náttúrulegri fegurð að skína. Förðunarmeistarinn Magnea sýnir hvaða vörur er hægt að nota til að framkalla þessa förðun.

Vörur frá Make Up Store:

Face Mist kr. 3.290.-
Cybershadow Prestige kr. 2.690.-
Twin Gloss kr. 2.690.-

miðvikudagur, september 09, 2009

Czarinna Klúbbkvöld





Síðastliðið miðvikudagskvöld var haldið fyrsta klúbbkvöld vetrarins. Þar var nýja haustlínan Czarinna kynnt. Emelia Alvarez gesta förðunarmeistari kom frá Svíþjóð og farðaði fyrir troðfullri verslun með nýju litunum. Kvöldið var einstaklega vel sótt og fengu viðskiptavinir góð ráð hjá Emeliu og starfsfólki Make Up Store.
Förðun: Emelia Alvarez
Model: Helga Gabríela

þriðjudagur, september 08, 2009

Getur ekki verið án


Í tímariti Monitors í haust eru tíu vörur teknar fyrir sem þú getur ekki verið án. Þar er Twin Gloss Rasberry, sjampó, hárnæring og hárvörurnar frá Make Up Store!

Gaman að segja frá því nú koma strákarnir líka og kaupa sér Messy eða Sticky til að móta hárið eftir að hafa prófað hárefnin! Nú eru hárvörurnar úr Make Up Store sem áður voru leyndarmál farnar að rjúka út!

Twin Gloss kr. 2.690.-
Shampoo kr. 2.690.-
Conditioner kr. 2.690.-
Shiny kr. 3.490.-
Messy kr. 3.490.-

Haltu brúnkunni lengur


Í ágúst hefti Nýs Lífs er grein þar sem lesundum er gefin góð ráð með hvernig þeir geta haldið brúnkunni lengur. Þar er bent á Luminous Bronzer pennann frá Make Up Store. Úr greininni:

Farði sem veitir andlitinu og líkamanum náttúrulegan gylltan bronsgljáa. Þú getur notað hann einan og sér til að fá náttúrulegan gljáa eða blandað honum við farðann þinn.

Persónulega er þetta ein vara úr Make Up Store sem er í uppáhaldi hjá mér. Ég nota hann daglega á kinnar og enni yfir Sport Foundation farðann minn. Luminous Bronzer gerir mann ýkt sætan og frísklegan!

Luminouz Bronzer kr. 5.990.-

sunnudagur, september 06, 2009

Madonna Rio de Janeiro






Fyrir þá sem sáu ekki myndirnar af Madonnu í tímariti W. Myndir eru eftir Steven Klein

fimmtudagur, september 03, 2009

miðvikudagur, september 02, 2009

Kate Moss fyrir Top Shop




Kate Moss fyrir Top Shop haust/vetur 2009. Virkar eins og "must buy" bolir á efstu myndunum. Þetta þarfnast nánari athugun!

Kate Moss fyrir YSL

þriðjudagur, september 01, 2009