
Hér að ofan er grein sem ég skrifaði fyrir Fréttablaðið sl. föstudag. Vona þið hafið gaman af!
Á hverjum degi má sjá myndir af frægum Hollywood stjörnum sem líta óvenju vel út miðað við aldur. Við „venjulega fólkið“ komumst varla hjá því en að fylgjast með þeim á síðum blaðanna. Oft horfum við með aðdáun yfir hversu vel viðkomandi lítur út en stundum hristum við hausinn og áttum okkur á því að viðkomandi sé komin yfir þessi fínu mörk þ.e. að vera komin með óeðlilegt útlit eins og t.d. ein velþekkt rauðhærð Hollywood leikkona. Oftar en ekki þegar við sjáum stjörnur á fimmtugsaldri líta brjálæðislega vel út; með slétta, þétta og ljómandi húð má gera ráð fyrir að viðkomandi sé farin að nota Botox og jafnvel farið undir hnífinn. Eitt er víst að það er mikil vinna og kostnaður sem liggur að baki. Útlitskröfurnar í dag eru orðnar verulegar og oft á tíðum óraunhæfar. En þar sem flest okkar viljum nú líta vel út má benda á að það má bæta ýmsu inn í daglega húðumhirðu til að ná fram frísklegu útliti án þess að stinga sprautunál í andlitið. Ef sá sem les þetta reykir og er ekki tilbúinn að hætta þá þarf ekki að lesa lengra því hann mun aldrei ná fram því sem við erum að spá í hér. Reykingar elda um 10 ár punktur!
Til að byrja með skulum við skoða mataræðið því það spilar gríðarlega stórt hlutverk í því að halda húðinni fallegri og að líta vel út. Mataræðið þarf að vera fjölbreytt og innihalda mikið af Omega 3 fitusýrum. Fitusýrurnar eru mikilvægt næringarefni fyrir alla starfsemi líkamans eins og fyrir húðina og þá sérstaklega yfir vetratímann. Líkaminn framleiðir ekki ómega-3 fitusýru og verður því að fá hana úr fæðunni. Einnig eru andoxunarefni meðal þeirra bætiefna sem eru hvað mikilvægust fyrir húðina. Virkni andoxunarefna er fjölbreytt og talið er að þau geti verndað frumuhimnur líkamans og hægt á öldrun. Snúum okkur nú að yfirborði húðarinnar. Til að hugsa vel um húðina er mikilvægt að eiga húðbursta og bursta húðina 1-2 á dag þegar húðin er hreinsuð. Gott er að nudda burstanum í hringlagahreyfinga. Það fjarlægir þurra húð (dauðar húðfrumur) og gerir það að verkum að blóðflæðið eykst og húðin endurnýjar sig því fyrr.
Húðvörur eru orðnar einstaklega góðar í dag og er hægt að velja úr ótal merkjum. Það sem stendur upp úr eru krem sem eru notuð undir farða, einskonar “grunnur” sem fyllir upp í fínar línur og hrukkur. Grunnurinn þarf að vera þykkur með flauelisáferð til að gefa húðinni slétt yfirbragð. Þetta gelkennda efni er borið á húðina og látið þorna. Síðan er farðinn borinn á. Eftir að farðinn hefur verið settur á er tilvalið að velja einskonar “highlighter” sem gerir það að verkum að húðin verður mjúk og ljómandi. Kremlitnum er dúppað örlítið á kinnbein, nefbein og enni. Til að móta andlitið er gott að dusta möttum kinnalit undir kinnbein, undir kjálkabeinið og létt í kringum andlitið nálægt hárrótinni. Þar sem varirnar minnka með aldrinum getur það virkað yngjandi að nota einskonar “lip plumper”. Það ertir og hleypir blóðflæðinu af stað og gerir varirnar örlítið þrýstnari og litameiri. Frábært ráð er að bretta upp á augnahárin áður en þau eru lituð. Það gerir að að verkum að augnahárin virka lengri, það gefur bjartara yfirbragð á augun og yngir jafnvel upp.
Með kveðju Margrét

0 Athugasemdir:
Sendu inn athugasemd