sunnudagur, mars 28, 2010

Lærðu að gera smókí augnförðun



Í nýjasta tímariti Nýs lífs er kennt að gera Smókí augnförðun. Vörurnar sem eru notaðar frá Make Up Store eru:

Make Up Store augnskuggi; Upper East
Make Up Store Baby Doll puff; gefur glimmer áferð
Make Up Store varablýantur; Lollipop
Make Up Store augnskuggaduft; Fame

laugardagur, mars 27, 2010

Brúðarblað Nýs lífs


smellið á mynd til að stækka.

Vörur frá Make Up Store:
Farði: Liquid Foundation
Hyljari: Reflex Cover
Húð/Highlight: Venus
Kinnalitur: Must Have
Augnskuggi: Vanilla, Casual, Muffin og Dry Lake
Augnskuggaduft: Fame
Augnblýantur: Silver Soil
Maskari: Sensitive Mascara
Varablýantur: Forbidden Kiss
Varalitur: Trip

Höfundur: Kolbrún Pálína Helgadóttir
Make Up og hár: Margrét
Fyrirsæta: Sigrún Eva Jónsdóttir

föstudagur, mars 26, 2010

Uppáhald ritstjóra...


Tri Brow, litur í augabrúnir frá Make Up Store

fimmtudagur, mars 25, 2010

Nude Magazine er nýtt



Make Up Store augnskuggi; Silk
Make Up Store augnskuggaduft; Sight
Make Up Store augnskuggabursti; Angled
Make Up Store varalitur; Fairy og Blush
Make Up Store kinnalitur; Lush

Sjá nýja nettímaritið nánar hér
Make Up Store naglalökk; Lotta, Stina og Michael.

föstudagur, mars 19, 2010

Bruðarblað Morgunblaðsins




Falleg brúður. Á brúðkaupsdaginn vilja flestar konur vera með náttúrulega og fallega förðun.

Morgunblaðið, Lifun. Brúðkaup. Föstudaginn 19. mars 2010

Rómantísk förðun

Mild og náttúruleg förðun er vinsæl hjá brúðum en Margrét R. Jónasardóttir talar um að brúðarförðun eigi alltaf að endurspegla persónuna. Stundum sé nóg að fríska upp á húðina og ramma inn augun sé brúðurin ekki vön að farða sig.

Náttúruleg förðun er jafnan vinsælust fyrir daginn stóra enda dregur hann fram fegurð hverrar konu á eðlilegan hátt. Margrét R. Jónasardóttir hjá Make Up Store talar um að brúðarförðun eigi að endurspegla persónuna eins og hún er en ekki að breyta miklu. Þær konur sem mála sig vanalega mjög lítið ættu að varast að láta farða sig of mikið og öðruvísi en þær eru vanar. Frekar að láta eingöngu fríska upp á húðina, ramma örlítið inn augun, draga fram það fallega og hylja það sem þarf. Litirnir sem verða vinsælir fyrir brúðkaupin í vor og sumar eru mildir. Á augun eru rjómagulir, mildir gráleitir, fjólutónar og einnig gylltir og brúnir litir.

Grunnurinn skiptir máli

Hér má sjá förðun sem Margrét vann sem dæmi um hvernig brúðarförðun lítur út. Hún segir að grunnurinn skipti miklu máli. »Sem grunn undir farða notaði ég Age perfecting serum en það fyllir upp í fínar línur og opna húð ásamt því að auka endingu farðans á brúðkaupsdaginn. Gott er að setja einn eða tvo dropa af Nutrilizer yellow út í farðann því það dregur úr bleikum tón húðarinnar. Ef það er farið í brúðarmyndatöku er gott að bæta við gula tóninn þar sem flassmyndataka getur dregið fram bleika tóninn í húðinni á myndum. Ég nota ávallt Liquid Foundation sem er léttur og rakagefandi farði sem gefur fallega áferð. Síðan nota ég frekar þekjandi hyljara á þá staði sem þarf að hylja meira. Þar sem ég vil hafa svæðið í kringum augun ljósara nota ég kremhyljara sem heitir Reflex Cover undir augun, ofan á augnlokin og á nefbeinið.

Vanda vel ásetningu á maskara

Margrét talar um að hún vilji hafa augun í dekkri kantinum því það kemur betur út á myndum, þá sjáist litirnir og formið vel en hver og einn getur útfært þessa förðun að eigin smekk. Á augun notaði ég frekar milda liti og þar á meðal ljósan sanseraðan lit yfir augnlokið. Í glóbuslínuna blandaði ég saman tveimur litum sem heita cashmere og smog. Þá liti nota ég afar mikið og finnst þeir nánast ómissandi í svona grunnskyggingu til að forma augað. Í skygginguna út í enda og undir augað notaði ég einn söluhæsta litinn í Make Up Store sem heitir Velvet. Að lokum nuddaði ég Silver Soil-blýanti í lítinn bursta og rammaði inn augun. Það gefur svona mildara yfirbragð ef viðkomandi vill síður eyelinerlínu. Fyrir brúðarförðun þarf að vanda vel ásetninguna á maskara. Gott er að fjarlægja örlítið úr burstanum í þurrku áður en sprotinn er notaður og setja frekar tvær til þrjár umferðir á augnhárin. Þetta gefur fallegri og eðlilegri útkomu.

Kinnalitur er afar fallegur á brúðina og í flestum tilfellum má setja vel af honum fremst í kinnarnar til að gefa frísklegt útlit. Á varirnar notaði ég nýjasta litinn úr Fifties-línu Make Up Store og glæran gloss yfir þar sem mér finnst glansinn afar fallegur í sumar, segir Margrét og bætir við að í Make Up Store sé boðið upp á persónulega kennslu fyrir brúðardaginn ef konur vilja farða sig sjálfar auk þess sem hægt er að bóka förðun fyrir stóra daginn.

Mild bananaskygging

Aðspurð hvernig tískan sé almennt í förðun segir Margrét að bananaskyggingin sé að koma aftur. Hún er þó ekki eins áberandi og í eins brjáluðum litum og hún var heldur mildari. Núna er mikið um að það sé borinn ljós litur á augnlokið og aðeins dekkri litur í glóbuslínuna í náttúrulegum lit, svokölluð bananaskygging. Skyggingin formar augað og gefur meiri dýpt og síðan er hægt að velja nánast hvaða liti sem er til að ramma inn augað með því að nota augnblýanta eða augnskugga. Á varirnar eru ljósir litir eins og pastelbleikir og ljósir ferskjulitir vinsælir. Varirnar verða glansandi þannig að það er gott að fjárfesta í glærri glosstúpu sem er auðvitað hægt að setja yfir alla varaliti. Kinnaliturinn og varaliturinn verða að spila saman og er hann fallegastur fremst í kinnarnar núna þetta árið.

svanhvit@mbl.is

Förðun og hár: Margrét
Fyrirsæta: Svala Lind
Hárband: Anna Soffía
Kjóll: Rokk og rósir
Ljósmynd: Margrét

fimmtudagur, mars 18, 2010

Fifties klúbbkvöld

smellið á myndir til að stækka.


Það var fullt út að dyrum hjá okkur í kvöld í Make Up Store í Smáralindinni. Kvöldið var afar vel heppnað og voru viðskiptavinirnir yfir sig hrifnir af nýju litunum í Fifties línunni.

Ég sýndi förðun og ákvað að skipta andlitinu og gera sitthvora förðunina á sitthvort augað. Annað augað var nýtískulegra, dekkra og með blýanti. Hitt var með ljósum skugga á augnlokinu og örlítilli skyggingu úti í enda og eyeliner. Ef þið hafið áhuga þá get ég sett inn nöfnin á litunum.

Model: Birna | Fatnaður: Oasis, Smáralind.

miðvikudagur, mars 17, 2010

mánudagur, mars 15, 2010

föstudagur, mars 05, 2010

Botox laus fegurð



Hér að ofan er grein sem ég skrifaði fyrir Fréttablaðið sl. föstudag. Vona þið hafið gaman af!

Á hverjum degi má sjá myndir af frægum Hollywood stjörnum sem líta óvenju vel út miðað við aldur. Við „venjulega fólkið“ komumst varla hjá því en að fylgjast með þeim á síðum blaðanna. Oft horfum við með aðdáun yfir hversu vel viðkomandi lítur út en stundum hristum við hausinn og áttum okkur á því að viðkomandi sé komin yfir þessi fínu mörk þ.e. að vera komin með óeðlilegt útlit eins og t.d. ein velþekkt rauðhærð Hollywood leikkona. Oftar en ekki þegar við sjáum stjörnur á fimmtugsaldri líta brjálæðislega vel út; með slétta, þétta og ljómandi húð má gera ráð fyrir að viðkomandi sé farin að nota Botox og jafnvel farið undir hnífinn. Eitt er víst að það er mikil vinna og kostnaður sem liggur að baki. Útlitskröfurnar í dag eru orðnar verulegar og oft á tíðum óraunhæfar. En þar sem flest okkar viljum nú líta vel út má benda á að það má bæta ýmsu inn í daglega húðumhirðu til að ná fram frísklegu útliti án þess að stinga sprautunál í andlitið. Ef sá sem les þetta reykir og er ekki tilbúinn að hætta þá þarf ekki að lesa lengra því hann mun aldrei ná fram því sem við erum að spá í hér. Reykingar elda um 10 ár punktur!

Til að byrja með skulum við skoða mataræðið því það spilar gríðarlega stórt hlutverk í því að halda húðinni fallegri og að líta vel út. Mataræðið þarf að vera fjölbreytt og innihalda mikið af Omega 3 fitusýrum. Fitusýrurnar eru mikilvægt næringarefni fyrir alla starfsemi líkamans eins og fyrir húðina og þá sérstaklega yfir vetratímann. Líkaminn framleiðir ekki ómega-3 fitusýru og verður því að fá hana úr fæðunni. Einnig eru andoxunarefni meðal þeirra bætiefna sem eru hvað mikilvægust fyrir húðina. Virkni andoxunarefna er fjölbreytt og talið er að þau geti verndað frumuhimnur líkamans og hægt á öldrun. Snúum okkur nú að yfirborði húðarinnar. Til að hugsa vel um húðina er mikilvægt að eiga húðbursta og bursta húðina 1-2 á dag þegar húðin er hreinsuð. Gott er að nudda burstanum í hringlagahreyfinga. Það fjarlægir þurra húð (dauðar húðfrumur) og gerir það að verkum að blóðflæðið eykst og húðin endurnýjar sig því fyrr.

Húðvörur eru orðnar einstaklega góðar í dag og er hægt að velja úr ótal merkjum. Það sem stendur upp úr eru krem sem eru notuð undir farða, einskonar “grunnur” sem fyllir upp í fínar línur og hrukkur. Grunnurinn þarf að vera þykkur með flauelisáferð til að gefa húðinni slétt yfirbragð. Þetta gelkennda efni er borið á húðina og látið þorna. Síðan er farðinn borinn á. Eftir að farðinn hefur verið settur á er tilvalið að velja einskonar “highlighter” sem gerir það að verkum að húðin verður mjúk og ljómandi. Kremlitnum er dúppað örlítið á kinnbein, nefbein og enni. Til að móta andlitið er gott að dusta möttum kinnalit undir kinnbein, undir kjálkabeinið og létt í kringum andlitið nálægt hárrótinni. Þar sem varirnar minnka með aldrinum getur það virkað yngjandi að nota einskonar “lip plumper”. Það ertir og hleypir blóðflæðinu af stað og gerir varirnar örlítið þrýstnari og litameiri. Frábært ráð er að bretta upp á augnahárin áður en þau eru lituð. Það gerir að að verkum að augnahárin virka lengri, það gefur bjartara yfirbragð á augun og yngir jafnvel upp.

Með kveðju Margrét